Jónatan Ingi Jónsson (1999), leikmaður Vals, hefur verið fjarri góðu gamni vegna meiðsla frá því snemma í síðasta mánuði vegna ökklameiðsla. Jónatan meiddist í bikarleiknum gegn KR, meiðslin litu ekki vel út og eftir myndatöku kom í ljós að liðband í ökkla hefði slitnað og hann fékk einnig beinmar.