Dagana eftir kosningar fer iðulega mikið fyrir vangaveltum um meirihlutamyndanir og viðræðum milli flokka. Á meðan kjördagur og talning atkvæða liggur nokkuð ljós fyrir, þá gerir eftirleikurinn það ekki endilega.Hvað þýðir það að vera í óformlegum viðræðum eða formlegum? Og hvernig myndar fólk meirihluta? Getur hver sem er ákveðið að vinna með hverjum sem er? Hvað er hreinn meirihluti?Hér vonumst við til að geta gert þessu skil - á mannamáli. MEIRIHLUTINN RÆÐUR FRAMTÍÐ ÞÍNS SVEITARFÉLAGS Hvert sveitarfélag hefur tiltekinn fjölda sveitarstjórnar-, bæjar- eða borgarfulltrúa. Fjöldinn fer eftir stærð sveitarfélagsins. Í sveitarstjórn gildir sama grunnregla og á Alþingi – meirihlutinn ræður við stjórn sveitarfélagsins. Minnihlutinn getur þó lagt ýmislegt til málanna en gegnir líka mikilvægu