Ólíklegt að Timber verði klár í úrslitaleikinn

Ólíklegt er að varnarmaðurinn Jurrien Timber verði klár fyrir úrslitaleik Arsenal gegn Paris St-Germain í Meistaradeildinni. Timber er í kapphlaupi við tímann til að vera klár í leikinn þann 30. maí, og fyrir heimsmeistaramótið með hollenska landsliðinu. Hann hefur verið fjarri góðu gamni frá því um miðjan mars vegna nárameiðsla. Hollenski hópurinn verður kynntur í næstu viku.
Ólíklegt að Timber verði klár í úrslitaleikinn
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd