Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur, segir eftirbragðið „súrt“ eftir sveitarstjórnarkosningarnar. Samfylkingin hélt sínum fulltrúafjölda í borginni, hlaut 18,3 prósent atkvæða en það er minnsta fylgi í Reykjavík frá því flokkurinn bauð fyrst fram undir eigin nafni fyrir tuttugu árum.Dagur var gestur Kastljóss í gærkvöld.„Ég held að Pétur Marteinsson, okkar nji oddviti, hafi staðið sig vel og sá hópur sem var á bak við hann. Við byrjuðum með meiri meðvind um mitt vor, vorum að mælast mjög vel í Hafnarfirði, Kópavogi og Reykjavík en gáfum eftir á lokametrunum og þess vegna situr eftir smá súrt eftirbragð.“Dagur B. Eggertsson fyrrverandi borgarstjóri segist fyrst og fremst stoltur af störfum sínum í borginni en finni einnig til ábyrgðar. Ha