FH-ingurinn Logi Hrafn Róbertsson (2004) var á skotskónum þegar Värnamo tók á móti Norrby í sænsku B-deildinni um helgina. Hann skoraði annað mark liðsins í leiknum og kom heimamönnum í 2-1. Markið dugði þó ekki til því lokatölur urðu 2-2. Markið var annað markið hans Loga fyrir félagið og var það af dýrari gerðinni. Varnarmaður Norrby skallaði boltann hátt upp í loftið, Logi kom á ferðinni og lúðraði boltanum að marki á lofti fyrir utan D-bogann á vítateig Norrby. Boltinn söng svo í netinu eins og sjá má í spilaranum hér að neðan.