Seinni umræða um um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu er á dagskrá Alþingis á morgun. Þingfundurinn hefst klukkan 15 og þetta er eini dagskrárliður hans utan óundirbúins fyrirspurnartíma.Málið er þingsályktunartillaga sem þýðir að það fer í gegnum tvær umræður í þinginu en ekki þrjár eins og lagafrumvörp. Að seinni umræðu lokinni gengur málið til atkvæðagreiðslu.Eftir fyrri umræðu fór þingsályktunartillagan til utanríkismálanefndar þaðan sem það var afgreitt í gær. Meirihluti nefndarinnar lagði til að spurningunni yrði breytt þannig að spurningin yrði: „Á að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“ MINNIHLUTI UTANRÍKISMÁLANEFNDAR MÓTMÆLTI AFGREIÐSLU ÚR NEFND Minnihluti utanríkismálanefndar bókaði mótmæli gegn því að málið væri tekið