Jason Daði Svanþórsson (1999) mun yfirgefa Grimsby þegar samningur hans við félagið rennur út. Þetta staðfestir enska félagið með færslu á samfélagsmiðlum. Jason var í tvö ár hjá félaginu en hann var keyptur frá Breiðabliki sumarið 2024. Hann er eldfljótur kantmaður sem var stóru lykilhlutverki þegar Breiðablik varð Íslandsmeistari 2022. Hann er uppalinn í Aftureldingu og hélt í Breiðablik eftir tímabilið 2020.