Sara Pétursdóttir, sem áður gekk undir nafninu Glowie, segist standa með tónlistarkonunni Bríeti í deilum hennar við Pálma Ragnar Ásgeirsson, pródúsent og lagahöfundi. Glowie og Pálmi unnu saman áður en hún gerði útgáfusamning við Columbia Records árið 2017. Við tók áralangt samstarf Pálma með Bríeti en hún hefur nú krafið þrotabú félags, sem var í eigu Pálma, um greiðslu átta milljóna króna.