Farið fram á frávísun í máli Skúla Tómasar

Skúli Tómas Gunnlaugsson hjartalæknir fór í dag fram á að máli hans yrði vísað frá dómi.Almar Möller, lögfræðingur Skúla, staðfestir þetta. Hann sagðist þó ekki vilja útskýra á hvaða grundvelli farið væri fram á frávísun í máli Skúla. Þingfesting í málinu fór fram klukkan 14:00 í dag í Héraðsdómi Reykjaness. Skúli Tómas er ákærður fyrir manndráp og brot á lögum um heilbrigðisstarfsmenn. Hann er til vara ákærður fyrir manndráp af gáleysi og brot á lögum um heilbrigðisstarfsmenn.Skúli Tómas var grunaður um að hafa borið ábyrgð á andláti sex sjúklinga sinna. Fimm mál voru felld niður og gefin út ákæra í einu þeirra.Skúli Tómas var til rannsóknar hjá lögreglu og héraðssaksóknara síðastliðin fimm ár vegna gruns um að hafa sett sjúklinga sína á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í lífslokameðferðir a
Farið fram á frávísun í máli Skúla Tómasar
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd