Áhersla á að styrkja samstarf Indlands og Norðurlandanna í þeim síbreytilega heimi sem við lifum í var áberandi á blaðamannafundi sem forsætisráðherrarnir héldu í Ósló í dag. Hann var haldinn eftir leiðtogafund ráðherranna í morgun. Narendra Modi forsætisráðherra Indlands notaði þar orð sem hefur svipaða merkingu á hindú og íslensku.Modi nefndi meðal annars að tengslin þarna á milli hefðu aukist undanfarin ár. Meðal annars hefðu fjárfestingar Norðurlandanna á Indlandi aukist um 200% og tvíhliða viðskipti hefðu fjórfaldast. Þá hefðu Indland og EFTA-ríkin gert fríverslunar- og efnahagssamning í október í fyrra og svo fríverslunarsamning við Evrópusambandið fyrr á þessu ári.Modi nefndin einnig að samstarf Indlands og Norðurlandanna hafi í seinni tíð snúið meira að grænum lausnum. „Með því að