Það var búist við því fyrir ári síðan að argentínski markvörðurinn Emiliano Martínez væri á förum frá Aston Villa. Hann var með tárin í augunum þegar hann kvaddi stuðningsmenn í lok tímabilsins. „Ég grét líka þegar ég fór frá Argentínu til Englands. Hlutir breytast í fótbolta og fólk kemur og fer. Það þýðir ekki að ég elska ekki félagið. Ég varð heimsmeistari með Argentínu sem markvörður Aston Villa, ég hef unnið tvo gullhanska hjá félaginu og mun alltaf elska það," segir Martínez.