Ronaldo í hópnum og fer á sitt sjötta heimsmeistaramót

Portúgalska landsliðið hefur staðfest hóp sinn fyrir HM í sumar. Hinn 41 árs gamli Cristiano Ronaldo er í hópnum og mun spila á sínu sjötta heimsmeistaramóti. Lionel Messi, Argentínu, er líka á leið á sitt sjötta HM en enginn leikmaður hefur til þessa leikið á fleiri heimsmeistaramótum en fimm. Ronaldo hefur verið hjá Al-Nassr í Sádi-Arabíu síðan í janúar 2023. Það er ekkert óvænt í portúgalska hópnum og þar má finna þekkt nöfn á borð við Bruno Fernandes, Vitinha og Joao Neves. Portúgal verður í riðli með Kongó, Úsbekistan og Kólumbíu á HM.
Ronaldo í hópnum og fer á sitt sjötta heimsmeistaramót
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd