Vilja að búseta fatlaðra verði heimili frekar en úrræði

Hverfa á frá stöðluðum lausnum yfir í fjölbreyttar einstaklingsmiðlaðar lausnir, segir starfshópur sem Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, skipaði til að koma með tillögur um búsetumál fatlaðs fólks.Starfshópurinn hefur afhent ráðherra skýrslu með níu aðgerðum sem gætu orðið hluti af áætlun til sjö til tíu ára.Hópurinn leggur til að öll búseta fatlaðs fólks verði skilgreind sem heimili en ekki sem úrræði. Þannig ætti að miða við að áherslan færðist frá stöðluðum lausnum yfir í einstaklingsmiðaðar og fjölbreyttar lausnir.Hópurinn vill meðal annars efla stuðnings- og stoðþjónustu við fjölbreyttari búsetukosti, efla þjálfunarbúsetu og endurskoða sérstaklega þjónustu við aldrað fatlað fólk.
Vilja að búseta fatlaðra verði heimili frekar en úrræði
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd