Lögreglan á Suðurnesjum fór fram á að vitni skyldi eyða upptöku af handtöku manns sem kveikti í sér á Suðurnesjum í gær. Lögmaður telur aðgerðir lögreglu ólögmætar.Maður var fluttur með töluverða brunaáverka á Landspítalann í gær eftir að hafa kveikt í sér. Lögreglan á Suðurnesjum hafði haft afskipti af manninum og beitti rafbyssu til þess að reyna að yfirbuga hann. Lögregla segir að hann hafi síðan kveikt í sér, eftir að hafa verið búinn að hella yfir sig bensíni. TILRAUN TIL AÐ EYÐA SÖNNUNARGÖGNUM Lögregla gerði sjónarvotti að eyða myndbandi sem hann tók af aðgerð lögreglu. Gunnar Ingi Jóhannsson hæstaréttarlögmaður segir líkur á að lögregla hafi með því farið út fyrir sínar valdheimildir.„Ef lögreglan hefði talið eitthvað ólögmætt við þetta þá hefði verið að minnsta kosti rétt að bið