Stuðningsmenn Villa baða sig í bjór og sól í Istanbúl

Stuðningsmenn Aston Villa eru heldur betur að njóta lífsins í Istanbúl, þar sem liðið mætir Freiburg frá Þýskalandi í úrslitaleik Evrópudeildarinnar annað kvöld. Unai Emery, stjóri Aston Villa, hefur unnið Evrópudeildartitilinn fjórum sinnum. Oftast allra stjóra. Þrjá sem stjóri Sevilla og einn sem stjóri Villarreal. Spánverjinn setur nú stefnuna á sinn fimmta Evrópudeildartitil en þetta verður í fyrsta sinn í sögunni sem Aston Villa mætir Freiburg.
Stuðningsmenn Villa baða sig í bjór og sól í Istanbúl
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd