Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs 2026 verða afhent í október. Þrettán verk eru tilnefnd frá öllum Norðurlöndunum fyrir listrænt gildi og spanna vítt svið ólíkra greina og tjáningar. Öll eiga þau það sameiginlegt að einkennast af nýsköpun og listrænum gæðum.Meðal tilnefndra verka eru allt frá barnaóperu til kvikmyndatónlistar, klassískrar tónlistar, popps og djass, auk efnis sem tekið er upp utan hljóðvera, nútímalegrar túlkunar á austurgrænlenskum trommudansi og norðursamískri jojkhefð í bland við rafrænar hljóðmyndir.Tónskáldin Bergrún Snæbjörnsdóttir og Ingibjörg Turchi eru tilnefndar fyrir Íslands hönd í ár.Handhafa tónlistarverðlaunanna verður afhent styttan Norðurljós á sérstakri verðlaunahátíð í tengslum við þing Norðurlandaráðs sem er að þessu sinni haldið í Helsinki í Finnlandi. V