Áhorf á úrslitakvöld Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva var í fjölmörgum löndum talsvert minna en undanfarin ár. Þátttökuþjóðirnar hafa ekki allar skilað inn áhorfstölum en miðað við birtar tölur var mesta áhorfið í Þýskalandi. Þar horfðu 8,94 milljónir á úrslitakvöldið, sem samsvarar meira en 64% áhorfi. Það eru örlítið færri en í fyrra þegar 9,1 milljón fylgdist með en það var mesta áhorf í Þýskalandi síðan 2016. MINNSTA ÁHORF Í BRETLANDI Í 16 ÁR Á Ítalíu og í Bretlandi voru áhorfendur úrslitakvöldsins rétt rúmlega 5 milljónir. Þrátt fyrir svipaðar áhorfstölur segja þær sitthvora söguna. Áhorfið á Ítalíu var í takti við síðustu ár en í Bretlandi hefur það ekki verið lægra síðan 2010. Til samanburðar hafa áhorfendur í Bretlandi flestir verið 9,9 milljónir 2023. Árangur þjóðanna spi