FÍA og FVFÍ funda aftur með Icelandair á fimmtudag

Áfram verður fundað í kjaraviðræðum Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) og Flugvirkjafélags Íslands (FVFÍ) við Icelandair á fimmtudag. Fundir fóru fram í báðum deilum hjá ríkissáttasemjara í gær í báðum deilum.Jón Þór Þorvaldsson, formaður FÍA, segist lítið geta sagt um það sem fram fór á fundinum í gær og hverju sé stefnt að á fimmtudaginn.„Þetta er á viðkvæmum stað og samtal er í gangi,“ segir hann. Þá bendir hann á að ríkissáttasemjari hafi biðlað til bæði FÍA og Icelandair að tjá sig ekki um stöðu mála í fjölmiðlum.Óskar Einarsson, formaður FVFÍ, vildi sömuleiðis lítið segja um viðræðurnar en viðurkenndi að þó nokkuð bæri enn á milli. „Við erum með ákveðna þætti sem við þurfum að komast yfir áður en haldið er lengra,“ segir hann. ENN MÖGULEGT AÐ NÁ SAMAN Aðspurður hvort svo lang
FÍA og FVFÍ funda aftur með Icelandair á fimmtudag
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd