Karlmaður var dæmdur til 60 daga fangelsisvistar fyrir líkamsárás á fangavörð. Maðurinn sló konuna hnefahöggi í andlitið þar sem hún var við störf í fangageymslu lögreglustöðvarinnar við Hlemm í Reykjavík. Konan var bólgin, með sár og eymsli eftir árásina. Fangelsisrefsingin er skilorðsbundin.Maðurinn var einnig dæmdur til að greiða fangaverðinum 400 þúsund krónur í miskabætur og 248 þúsund krónur í málskostnað fangavarðarins. Maðurinn játaði sök en krafðist vægustu leyfilegu refsingar og lækkunar frá bótakröfu fangavarðarins sem vildi 800 þúsund krónur.Fangaklefar í lögreglustöðinni við Hlemm.RÚV / Eggert Þór Jónsson