Telur hækkun stýrivaxta óhjákvæmilega

Una Jónsdóttir, forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans, telur hækkun stýrivaxta óhjákvæmilega. Peningastefnunefnd Seðlabankans tilkynnir á morgun næstu stýrivaxtaákvörðun.Fram kom í viðtali við Unu í hádegisfréttum að nýbirtar tölur um samdrátt í innlendri kortaveltu séu líklegar til að hafa áhrif ákvörðun Seðlabankans en hún varar þó við því að lesa í einstakar mælingar. Hún telur þetta ekki breyta stóru myndinni en að vaxtahækkun verði ef til vill minni en ella. Hún spáir 0,25 prósentustiga hækkun.Una segir að vísbendingar um kólnun breyti því ekki að verðbólga og verðbólguvæntingar hafi hækkað undanfarið. Því er líklegt að seðlabankinn líti svo á að stýrivaxtahækkun sé óhjákvæmileg. AÐALMARKMIÐIÐ AÐ SLÁ Á VERÐBÓLGUVÆNTINGAR Mæling í apríl sýndi að verðbólguhækkunin sé fyrst og fr
Telur hækkun stýrivaxta óhjákvæmilega
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd