Stýrivaxtaákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands á morgun var til umfjöllunar í Þetta helst í dag. Stýrivextir voru hækkaðir um 0,25 prósentustig í mars og standa í 7,5 prósentum. Greiningardeildir spá því að stýrivextir verði hækkaðir um 0,25 - eða jafnvel 0,5 - prósentustig á morgun.Forseti ASÍ telur óráð að hækka stýrivexti á morgun og segir að það yrði slæmt innlegg í viðræður breiðrar samfylkingar gegn verðbólgu. Aðstoðarframkvæmdastjóri SA bendir á að róðurinn myndi þyngjast enn frekar fyrir fyrirtæki og heimili landsins. „BITNAR LANGVERST Á TEKJULÆGRI HÓPUNUM“ Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, telur óráð að hækka vexti á morgun, „vegna þess að það sem er að gerast núna utan landsteina er að hafa áhrif á verðbólguna og stýrivextir hafa engin áhrif á það. Við erum að