Syngur lag til föður síns á hverri sýningu

Unnsteinn Manuel sendi póstkort í Poppland og sagði frá laginu Bergnuminn, úr leiksýningunni Gæðablóð sem Unnsteinn sýnir um þessar mundir.„Í sýningunni er atriði þar sem ég syng í gospelmessu í Malaví og mig vantaði lag sem væri ekki of trúarlegt á þessum stað í sýningunni,“ segir Unnsteinn. „Á sama tíma og við erum að æfa verkið þá missi ég pabba minn úr krabbameini. Það hafði auðvitað þvílík áhrif á lagið og ekki síst spurningarnar sem kviknuðu hjá syni mínum í kjölfarið þegar hann syrgir afa sinn.“„Ég er afskaplega stoltur af því hvernig lagið tókst til og syng það til föður míns á hverri sýningu. Það passar líka svo vel í þema verksins, hvaðan komum við, hver er uppruni okkar, hvert stefnum við og hvernig viljum við að börnin okkar hugsi til okkar þegar við föllum frá?“
Syngur lag til föður síns á hverri sýningu
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd