Donni velur tvo hópa í U19 - Tíu frá FH

U19 landslið kvenna fer á EM í sumar (27. júní - 10. júlí) en fram að því kemur liðið tvisvar sinnum saman, fyrst til æfinga snemma í næsta mánuði, 1. og 2. júní og svo í kjölfarið fer liðið til Svíþjóðar og spilar æfingaleiki gegn Norðmönnum 6. júní og svo Svíum 8. júní. Halldór Jón Sigurðsson er þjálfari liðsins og hann hefur valið tvo hópa. Níu leikmenn sem skráðir eru í FH eru í hópnum og Hildur Katrín Snorradóttir er svo á láni hjá Grindavík/Njarðvík.
Donni velur tvo hópa í U19 - Tíu frá FH
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd