Svo virðist sem Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, hafi ekki haft samband við oddvita Framsóknar, Miðflokks og Viðreisnar í dag varðandi meirihlutamyndun. Hún fundaði í gær með oddvitum allra flokka sem náðu kjöri í kosningunum.