Kjörsókn í Reykjavík var mest í Fossvogsskóla í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum en minnst í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Hvergi í borginni fór kjörsókn undir 40% og á fimm stöðum var hún 60% eða meiri.Alls greiddu 54,95% kosningabærra borgarbúa atkvæði í kjördeildum víðs vegar í Reykjavík á laugardag, 3,7% meira en í síðustu sveitarstjórnarkosningum 2022.Kjörsókn var mest 67,17% í Fossvogsskóla og minnst 40,58% í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Hún jókst mest í Rimaskóla milli sveitarstjórnarkosninga, eða um 7,35%, en dróst saman um 2,4% í Hagaskóla.Þegar litið var til einstakra hverfa jókst hún einna mest í Grafarvogi og Grafarholti. Auk Rimaskóla var einnig 5,31% aukning í Foldaskóla og 6,03% aukning í Borgarskóla.