„Þetta hefur farið ágætlega af stað, það er gott fiskerí meira og minna, hringinn í kringum landið en svona fyrstu tvær vikurnar þá var leiðinda bræla,“ segir Kjartan Páll Sveinsson, formaður Landssambands smábátaeigenda.Strandveiðar hófust skömmu eftir mánaðarmót og hafa staðið alls í 8 daga. 667 bátar af 824 sem hafa leyfi hafa hafið veiðar. Eftir uppgjör gærdagsins var þorskafli kominn í 1.929 tonn sem er rúmum hundrað tonnum meira en eftir fyrstu 8 daga síðasta árs. Meðaltal var 241 tonn á dag. TALSVERÐ ÓVISSA Í KORTUNUM Vonast er til að strandveiðar geti staðið í 48 daga en ekki er búið að tryggja það með tilheyrandi lagabreytingum.Þá vofir einnig yfir stjórnsýslukæra Ísfélagsins í Vestmannaeyjum, aðildarfélags Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, til umboðsmanns Alþingis um að aukni