Sadiq Khan borgarstjóri London er allt annað en sáttur með útspil breskra stjórnvalda sem hafa nú lýst því yfir að heppilegt væri fyrir Breta að sækja um Norður-England haldi Sumarólympíuleikana árið 2040. Khan vill Ólympíuleikana til höfuðborgarinnar og telur það mistök að skilja London út undan.Bresk stjórnvöld hafa falið UK Sport, afreksíþróttamiðstöð Breta, að vinna stefnumótandi úttekt á mögulegu framboði Breta til leikanna árið 2040. eða jafnvel 2044 eða 2048. Áformin virðast grafa undan hugmyndum Khan um að halda leikana í London með því að nýta mannvirki sem reist voru fyrir Ólympíuleikana þar árið 2012.Khan kynnti fyrst hugmyndina í borgarstjórnarkosningabaráttunni árið 2021 um að vilja Ólympíuleikana aftur til ensku höfuðborgarinnar og sagði síðar að leikarnir árið 2040 gætu orði