Árni Marinó ristarbrotinn og ÍA kannar möguleika á neyðarskiptum

ÍA hefur orðið fyrir áfalli því í gær kom í ljós að Árni Marinó Einarsson, markvörður liðsins, er ristarbrotinn og verður frá næstu 6-8 vikurnar vegna meiðsla. Árni meiddist seint í fyrri hálfleik gegn Þór á sunnudag, en harkaði af sér út leikinn og hjálpaði ÍA að landa sigri. Hann var aðeins furðulegur í hornspyrnumarki Þórsara í seinni hálfleiknum og það vakti athygli að hann tók ekki markspyrnur í seinni hálfleiknum.
Árni Marinó ristarbrotinn og ÍA kannar möguleika á neyðarskiptum
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd