Vegagerðin hefur boðið út eftirlit og ráðgjöf með smíði nýrrar Þjórsárbrúar og gerð Búðafossvegar. Samningur um eftirlitið sem og fyrirhugað verkútboð eru þó háð því að búið verði að útkljá kærumál, sem árum saman hafa tafið bæði Hvammsvirkjun og Þjórsárbrúna.