Forgangskröfuhafar Play hafa samþykkt samkomulag sem þrotabúið hefur gert við skuldabréfaeigendur, sem halda utan um flugrekstrarleyfi á Möltu, en samkvæmt því gæti hlutdeild búsins af mögulegum endurheimtum þegar starfsemin þar kemst á flug numið um tíu prósent ef ávinningurinn reynist yfir tveir milljarðar. Frekari fjárhæðir falla í skaut búsins ef það tekst að innheimta fjármuni umfram höfuðstól skuldabréfaútboðsins.