Fundað um samstarf Norðurlandanna og Indlands

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hitti ásamt öðrum norrænum forsætisráðherrum Narendra Modi forsætisráðherra Indlands á fundi í Ósló í morgun.Þetta er í þriðja sinn á átta árum sem leiðtogar Norðurlandanna og Indlands hittast á slíkum fundi. Fréttaskýrendur segja þetta merki um að á tímum þar sem Bandaríkin reka fjandsamlegri stefnu en áður með tollum og hótunum, og Kína verði sífellt meira einræðisríki horfi Norðurlöndin til Indlands sem trausts samstarfs- og viðskiptafélaga.Aukið samstarf Norðurlandanna og Indlands á ýmsum sviðum hefur reglulega verið til umræðu. Indverjar hafa til dæmis mikinn áhuga á samstarfi í grænum lausnum eins og vindmyllum og kolefnisförgun, sjóferðum og fjarskiptakerfum, meðan Norðurlöndin sjá möguleika í aðgengi að stórum markaði, stafrænni þróun og ódýru
Fundað um samstarf Norðurlandanna og Indlands
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd