Skotland er í riðli með Haítí, Marokkó og Brasilíu í riðli á HM í sumar en Steve Clarke, þjálfari liðsins, tilkynnti í dag 26 manna hóp fyrir mótið. Markvörðurinn reynslumikli Craig Gordon, 43 ára, er meðal leikmanna í hópnum en hann er varamarkvörður Hearts. Leikæfing markvarða skoska liðsins er áhyggjuefni en allir þrír markverðirnir í hópnum eru varamarkverðir hjá sínum liðum. Samtals hafa Gordon, Angus Gunn og Liam Kelly spilað fimmtán leiki á tímabilinu, Gunn hefur spilað fimm landsleiki fyrir Skotland en aðeins einn leik fyrir Southampton og þá kom hann inn af bekknum.