Árni Rúnar Þorvaldsson, sem skipaði þriðja sæti lista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum, verður bæjarfulltrúi þegar ný bæjarstjórn kemur saman í byrjun júní, eftir að Guðmundur Árni Stefánsson oddviti flokksins greindi frá því í gær að hann hygðist ekki taka sæti og axla þannig ábyrgð á slæmu gengi í kosningunum.