Fór með hópa á risaleiki en laumaði sér á neðrideildarleiki á meðan

Þór Bæring hefur verið heitur stuðningsmaður neðrideildarliðsins Leyton Orient á Englandi í mörg ár. Þór fer nokkrum sinnum á ári til að sjá leiki félagsins og er öllum hnútum kunnugur þar á bæ. Hann hefur hitt alla sem máli skipta, farið út að borða með leikmönnum og stjórnarmönnum, grátið og brosað með stuðningsmönnum. Hann segir okkur hvernig þetta kom allt til, talar um tímabilið sem var að klárast og þjálfarann, Richie Wellens, sem var alls ekki sáttur eftir að í ljós kom að liðið náði að halda sér í ensku Fyrstu deildinni (þriðju efstu deildinni).
Fór með hópa á risaleiki en laumaði sér á neðrideildarleiki á meðan
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd