Luke Rae (2000) kom fyrst til Íslands fyrir tímabilið 2020 og lék þá með Tindastóli. Hann fór svo í Vestra og lék einnig með Gróttu áður en hann gekk í raðir KR fyrir tímabilið 2023. Hann er því á sínu fjórða tímabili í Vesturbænum. Kantmaðurinn er lykilmaður í sóknarleik liðsins, hefur skorað þrjú mörk og lagt upp fjögur í Bestu deildinni. Hann ræddi við Fótbolta.net í gær og var Englendingurinn spurður út í íslenskuna.