Troels Lund Poulsen leiðtogi Venstre, sem nú hefur umboð til að mynda ríkisstjórn í Danmörku, tilkynnti í morgun að hann vildi mynda minnihlutastjórn þriggja flokka í borgaralegu blokkinni, þ.e. Venstre, Íhaldsflokksins og Frjálslynda flokksins.Poulsen sagði við fjölmiðla í morgun að þetta væri besta leiðin til að mynda ríkisstjórn en nú eru hátt í tveir mánuðir frá þingkosningunum. Hann hafi rætt við hina tvo flokkana sem séu til í slaginn. Þeir séu sammála um nokkur stefnumál, meðal annars að lækka gjöld á eldsneyti og að halda þróunaraðstoð í 0,7% af landsframleiðslu. Venstre hafði áður boðað lækkun slíkrar aðstoðar og að peningarnir yrðu notaðir í varnarmál í staðinn.Þessir flokkar hafa 44 þingmenn en það þarf 90 til að styðja stjórnina. Það þýðir að þessi ríkisstjórn þyrfti ekki aðein