Ítalskir fjölmiðlar segja líklegt að Antonio Conte hætti sem stjóri Napoli og sterkur möguleiki sé á því að hann verði næsti landsliðsþjálfari Ítalíu. Gazzetan, bleika blaðið, segir að Conte og Aurelio De Laurentiis, forseti félagsins, hafi ákveðið það í síðasta mánuði á fundi að best væri að leiðir myndu skilja.