Um miðjan apríl var einum virtasta útgefanda Frakklands, Olivier Nora, sagt upp störfum hjá Grasset-forlaginu, eftir áratugastarf. Í kjölfarið sendu um 200 franskir rithöfundar forlagsins frá sér opið bréf þar sem þeir lýstu óánægju sinni og áhyggjum af framtíð forlagsins. Erlendir höfundar forlagsins bættust síðan í hópinn í síðustu viku en þar á meðal er nóbelsverðlaunahöfundurinn Han Kang og íslensku rithöfundarnir Bergþóra Snæbjörnsdóttir og Jón Kalman Stefánsson.Í frönskum fjölmiðlum hefur uppsögninni verið lýst sem táknrænni fyrir umbreytingar í frönskum menningarheimi. Gagnrýnin snýr að því hvernig bókaforlög, fjölmiðlar, sjónvarp og útvarp hafa í auknum mæli færst undir stjórn fárra auðmanna með skýra hugmyndafræðilega sýn þar sem vegið er að tjáningar- og skoðanafrelsi fransks men