Pep Guardiola hefur tilkynnt leikmönnum Manchester City að hann muni hætta hjá félaginu eftir lokaumferðina á sunnudag, þegar City mætir Aston Villa. Guardian greinir frá en Guardiola fannst hann þurfa að ræða við leikmannahópinn eftir að fjölmargir fjölmiðlar greindu frá tíðundunum í gær. Hann hafði vonast til að geta haldið ákvörðuninni leyndri lengur svo hún myndi ekki trufla lokaleikina. City þarf að vinna Bournemouth í kvöld til að eiga möguleika á meistaratitlinum á sunnudag.