Framundan hjá Stjörnunni eru tveir heimaleikir í Bestu deildinni. Stjarnan tekur á móti Fram á föstudag í 8. umferð Bestu deildarinnar og í kjölfarið er leikur gegn Víkingi næsta þriðjudag. Sá leikur er færður þar sem bæði lið eru á leið í Evrópuleiki í júlí. Eftir þann leik verður Stjarnan búin að spila sex heimaleiki í fyrstu níu leikjum sínum í deildinni.