Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Landsmenn kældu kortin sín í apríl

Mjög hefur dregið úr neyslugleði landsmanna síðustu mánuði, miðað við tölur Seðlabankans um kortanotkun innanlands og utan. Nýjustu tölur bankans voru birtar í dag og ná yfir kortanotkun í síðasta mánuði. Dregið hefur úr kortanotkun vítt og breitt, bæði milli mánaða og síðasta árið.Sama hvar litið er þá strauja landsmenn kort sín minna en áður. Heilt yfir var kortaveltan 4,8 prósentum minni í apríl en í mars og 2,4 prósentum minni en í apríl í fyrra.Samdrátturinn verður sérstaklega áberandi þegar litið er til kreditkorta. Landsmenn notuðu þau 7,2 prósentum minna í apríl en í mars og 2,4 prósentum minna en í apríl í fyrra. Samdrátturinn innanlands (8,1 prósent) er mun meiri en erlendis (3,9 prósent).Debetkortaneyslan minnkaði minna en minnkaði þó, um 1,4 prósent milli mánaða og 2,5 prósent
Landsmenn kældu kortin sín í apríl
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd