Útvarpsmaðurinn Ívar Halldórsson er týndur sonur tónlistarmannsins Johanns G. Jóhannssonar. Ívar segir mikla leynd hafa ríkt yfir faðerni hans um árabil, það hafi verið súrrealískt að sjá mann svo líkan sér í sjónvarpi en þeim feðgum hafi komið vel saman þegar þeir hafi hitt hvor annan í fyrsta sinn.