Standard Chartered, breskur banki sem leggur megináherslu á viðskipti í Asíu, tilkynnti að bankinn hygðist fækka stöðugildum í bakvinnslu um 7.800 til ársins 2030. Með bakvinnslu er átt við störf sem ekki eru sýnileg viðskiptavinum, eins og rekstur og úrvinnsla upplýsinga. Fækkunin nemur rúmlega 15% í þessum hluta starfseminnar.Um 82 þúsund manns starfa hjá bankanum víða um heim. Þessar aðgerðir hafa mest áhrif á skrifstofur erlendis, til dæmis í Varsjá, Kúala Lúmpúr og Chennai á Indlandi.Í yfirlýsingu frá bankanum kemur fram að ástæðan sé aukin notkun gervigreindar. Eða eins og stendur í lauslegri þýðingu: „Við tileinkum okkur hagnýtari notkun sjálfvirkni, háþróaðra greininga og gervigreindar til að stytta verkferla, bæta ákvarðanatöku og bæta bæði þjónustu við viðskiptavini og innri skil