Íslendingar fluttu inn vörur á síðasta ári fyrir nærri 500 milljörðum meira en þeir fluttu út. Heildarvöruútflutningur skilaði 932,1 milljarði króna í tekjur, einu prósenti minna en árið áður. Landsmenn greiddu 1.408,9 milljarða fyrir vörurnar sem þeir fluttu inn, 3,9 prósentum meira en árið áður. Aðkeyptu vörurnar kostuðu því 485,7 milljörðum meira en þær sem voru fluttar út. Fragtskip Eimskipa við bryggju í Sundahöfn.RÚV / Arnar Þórisson