Fjórða umferð Lengjudeildarinnar var spiluð á sunnudag og mánudag. HK vann 2-0 sigur á Njarðvík í stórleik umferðarinnar og Gunnar Heiðar Þorvaldsson, sem stýrði auvðitað Njarðvík en er núna með HK, er þjálfari umferðarinnar. Þá er leikmaður umferðarinnar uppalinn Njarðvíkingur sem fylgdi Gunnari til HK. LEIKMAÐUR UMFERÐARINNAR Svavar Örn Þórðarson - HK Þessi sterki varnarmaður var hrikalega öflugur fyrir HK gegn sínu fyrrum félagi. „Að Gunnar Heiðar fór yfir í HK spilaði auðvitað stóran part, ég er búinn að vera hjá honum síðustu tvö ár hjá Njarðvík og hef fundið fyrir miklu trausti frá honum og teyminu þannig að tækifærið að halda því áfram var bara frábært," sagði Svavar við Fótbolta.net í vetur um skiptin í HK.