Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Sonur stofnanda Mango handtekinn vegna dauða hans

Spænska lögreglan greindi í dag frá því að hún hefði handtekið Jonathan Andic, son Isaks Andics sem stofnaði tískuverslanarisann Mango. Andic eldri lést í fjallgöngu í desember 2024. Sonur hans var þá einn með honum á ferð. Upphaflega var talið að Andic hefði látist af slysförum en seinna vaknaði grunur um að sonurinn hefði myrt föður sinn. Það var ekki síst vegna mótsagnakennds framburðar hans í skýrslutökum. Hann hafði upphaflega réttarstöðu vitnis en síðar sakbornings.Isak Andic ásamt fatahönnuðinum Wisharawish Akaransantisook. Safnmynd.EPA / TONI ALBIR
Sonur stofnanda Mango handtekinn vegna dauða hans
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd