„Það er augljóst að miðjan er að gefa eftir þegar sveitarstjórnarkosningar eru bornar saman við kosningar á landsvísu,“ segir stjórnmálafræðingurinn Eiríkur Bergmann, spurður um stjórnmálalandslagið eftir sigur Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins í sveitarstjórnarkosningum. Sé litið til tölfræðinnar, og er þá notast við Metill.is, má sjá að Miðflokkurinn náði bestum árangri í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum, á meðan Píratar töpuðu mest, enda eiga þeir...