Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ein stærstu vopnakaup Svía í 40 ár

Svíar ætla að kaupa fjórar freigátur af franska hergagnarisanum Naval. Þær verða sérútbúnar vopnum til að verjast loftárásum.Ulf Kristersson forsætisráðherra, Pal Jonsson varnarmálaráðherra og Michael Claesson, yfirmaður sænska hersins, greindu frá kaupunum í dag.Kristersson sagði að með kaupunum þrefaldaðist loftvarnageta Svía frá því sem nú er. Hann sagði jafnframt að þetta væri ein mesta fjárfesting Svía í landvörnum síðan þeir keyptu Gripen-herþoturnar á níunda áratug síðustu aldar.Kristersson, Jonsson og Claesson sögðu að eftir viðræður við vopnaframleiðendur í Svíþjóð, Bretlandi og á Spáni hefði verið ákveðið að semja við Frakkana. Stefnt er að því að fyrsta freigátan verði tilbúin með öllum búnaði 2030.Ekki var greint frá kaupverðinu þar sem það ræðst á endanum af því hvaða vopnum o
Ein stærstu vopnakaup Svía í 40 ár
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd