Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Oddvitar funda í Norðurþingi – „Stundum hægt að vera sammála um að vera ósammála“

Oddvitar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins, Samfylkingarinnar og Óskalistans í Norðurþingi freista þess að mynda sjö manna meirihluta í sveitarfélaginu. Níu fulltrúar eru í sveitarstjórn í Norðurþingi og því verða aðeins fulltrúi Miðflokksins og fulltrúi Vinstri grænna í minnihlutanum verði af samstarfinu.Fundað verður í dag til að kanna hvort þeir finni flöt á hlutverkaskiptingu.„Við teljum að, þar sem það eru fjögur framboð við borðið, þá sé mikilvægt að byrja á að leysa það áður en farið verður í málefni. Ef við komum okkur saman um það tel ég í það minnsta að eftirleikurinn ætti að vera nokkuð auðveldur varðandi málefnin,“ segir Helena Eydís Ingólfsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins.Hún er bjartsýn á að flokkarnir nái saman um málefnin, takist að semja um hlutverkaskiptingu,
Oddvitar funda í Norðurþingi – „Stundum hægt að vera sammála um að vera ósammála“
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd