Peningastefnunefnd Seðlabankans tilkynnir á morgun hversu háir stýrivextir bankans verða á næstunni. Greiningardeildir hafa spáð því að vextir hækki þrátt fyrir aukið atvinnuleysi og að hægst hafi um á fasteignamarkaði.Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, var í viðtali á Morgunvaktinni á Rás 1 í morgun. Hann segir að verðbólga hafi þróast með mun óhagstæðari hætti en flestir vonuðust til. VERÐBÓLGAN GEFUR EKKERT EFTIR „Við héldum að verðbólga yrði á nokkuð öruggri leið niður að markmiði, ekki alveg niður í markmið, um þessar mundir, en hún hefur ekkert gefið eftir síðan um áramót heldur þvert á móti mjakast hún upp. Það er grábölvað vissulega en það sem kannski verra er að Seðlabankinn á í erfiðri baráttu við væntingar um verðbólgu.“Hann segir ekki nóg að verðbólgan sé mi